Létt spaug...

Gömlu hjónin lágu í rúminu og snéru baki hvort í annað. Konan var eirðarlaus og segir við hann: „Ég man þá tíð þegar þú klóraðir mér á bakinu." Gamli maðurinn snýr sér þreytulega við í rúminu og byrjar að klóra bakið hennar. En hún var ekki hætt. „Ég man þegar þú straukst mér blíðlega um vanga. Gamli maðurinn muldraði eitthvað en strauk henni svo um vanga. En hélt konan áfram og segir: „Ég man þá tíð þegar þú beitst mig lítillega í hálsinn. Gamli maðurinn staulast þá fram úr rúminu og gengur í átt að dyrunum. Gamla konan spyr hann forvitslega: „Hvert ertu að fara elskan ?" Ég er að ná í fölsku tennurnar segir hann þá....Smile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þú ert alveg ágætur!

Jón Halldór Guðmundsson, 5.1.2008 kl. 01:59

2 identicon

LOL! Þessi er klassískur.

Gunnhildur Reynisdóttir (IP-tala skráð) 5.1.2008 kl. 20:47

3 identicon

Góður þessi.

Við þurfum að geta hlegið annað slagið. Takk fyrir

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 02:52

4 identicon

Yndislega góður þessi Guð veri með þér vinur . Kveðja : Conwoy

conwoy (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband