5.1.2008 | 01:18
„Seðill, Seðill ég kaupi bara svona bíl
Mér blöskrar alveg að heyra að landinn sé að henda 6 til 7ára gömlum bílum til að geta keypt sér einn nýjan á 3 milljónir. Gylliboðin hljóma hvert öðru „betra" aðeins 15 þúsund á mánuði smáaletrið í 84 mánuði í blandari gengiskörfu sem þýðir á mannamáli að 15þúsundin geta orðið að 30þús á mánuði. Ég er alls ekki á móti því að fólk eigi nýja bíla, en máltækið að sníða sér stakk eftir vexti er horfið í glys auglýsinga bílaumboðana sem keppast um að mikilvægi þess að vera „Cool" á nýjum bíl.
Fyrir skemmstu átti ég samræður við mann sem var skuldum vafin en var samt sem áður að spá í bíl á einhverjar milljónir. Sem betur fer vaknaði viðkomandi og keypti sér fínan bíl á innan við hálfa milljón.
Margir átta sig ekki á því að þegar ný bíll er keyptur þá þarf að koma með hann reglulega í skoðun eigi ábyrgðin að haldast. Þannig verður þetta eins og snjó bolti sem rúllar niður hliðina.
Það er því rétt að hugsa málið til þrautar áður enn arkað er í umboðið.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.